Umhverfis- og mannvirkjaráð

167. fundur 27. ágúst 2024 kl. 08:15 - 10:50 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir formaður
  • Bjarney Sigurðardóttir varaformaður
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Ingimar Eydal
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Hildur Brynjarsdóttir D-lista mætti í forföllum Þórhalls Harðarsonar.

1.Forsendur fjárhagsramma - fjárhagsáætlun UMSA 2025

Málsnúmer 2024050867Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar forsendur fyrir fjárhagsramma vegna fjárhagsáætlunargerðar árið 2025 fyrir umhverfis- og mannvirkjasvið.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.

2.Húsaleiguáætlun - fjárhagsáætlun UMSA 2025

Málsnúmer 2024050867Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar húsaleiguáætlun fyrir Akureyrarbæ vegna ársins 2025.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.

3.Launaáætlun - fjárhagsáætlun UMSA 2025

Málsnúmer 2024050867Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar launaáætlun fyrir umhverfis- og mannvirkjasvið vegna ársins 2025.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.

4.Gjaldskrár - fjárhagsáætlun UMSA 2025

Málsnúmer 2024050867Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar gjaldskrár fyrir umhverfis- og mannvirkjasvið vegna ársins 2025.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.

5.Ferliþjónusta - endurnýjun bifreiða

Málsnúmer 2022011371Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 23. ágúst 2024 varðandi kaup á ferlibíl fyrir Strætisvagna Akureyrar.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar og Engilbert Ingvarsson verkstjóri strætisvagna og ferliþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.
Þar sem ekki eru aðrir umhverfisvænni kostir í boði samþykkir umhverfis- og mannvirkjaráð að leitað verði eftir verði í nýjan ferlibíl sem gengur fyrir dísel orkugjafa sem uppfyllir að lágmarki Euro 6 mengunarstaðalinn.

6.Þórssvæðið - knattspyrnuvöllur

Málsnúmer 2024030763Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 23. ágúst 2024 varðandi opnun tilboða í jarðframkvæmdir við gerð undirlags undir gervigras á knattspyrnuvöll á félagssvæði Þórs Akureyri. Fjögur tilboð bárust.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Nesbræður ehf. sem voru með lægsta tilboð að upphæð kr. 109.811.250 og vísar því til bæjarráðs.

7.Leiksvæði við Brekku- og Lundarskóla

Málsnúmer 2024081509Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 23. ágúst 2024 varðandi framkvæmdir á skólalóðum Brekkuskóla og Lundarskóla.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð lýsir yfir mikilli ánægju með uppbyggingu leiksvæða, sem eru mikið notuð, stuðla að bættri lýðheilsu og almennri gleði. Umhverfis- og mannvirkjaráð telur mikilvægt að halda áfram á þessari leið.

8.Viðhald leiguíbúða - rekstur UMSA 2024

Málsnúmer 2024080516Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 23. ágúst 2024 varðandi viðhald á leiguíbúðum Akureyrarbæjar.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.

9.Austurbrú - frágangur

Málsnúmer 2024021591Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 23. ágúst 2024 varðandi frágang á götum og gangstéttum í Austurbrú.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sat fundinn undir þessum lið.

10.Hljóðkerfi í Hofi

Málsnúmer 2024021576Vakta málsnúmer

Lagðir fram úrskurðir kærunefndar útboðsmála vegna kæra I.D. Electronic ehf. og Exton ehf. vegna útboðs á kaupum á hljóðkerfi í Hof.

Fundi slitið - kl. 10:50.