Leiksvæði við Brekku- og Lundarskóla

Málsnúmer 2024081509

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 167. fundur - 27.08.2024

Lagt fram minnisblað dagsett 23. ágúst 2024 varðandi framkvæmdir á skólalóðum Brekkuskóla og Lundarskóla.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð lýsir yfir mikilli ánægju með uppbyggingu leiksvæða, sem eru mikið notuð, stuðla að bættri lýðheilsu og almennri gleði. Umhverfis- og mannvirkjaráð telur mikilvægt að halda áfram á þessari leið.