Umhverfis- og mannvirkjaráð

165. fundur 02. júlí 2024 kl. 08:15 - 12:00 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir formaður
  • Inga Dís Sigurðardóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Unnar Jónsson
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Unnar Jónsson S-lista mætti í forföllum Hildu Jönu Gísladóttur.

1.Móahverfi - gatnagerð og lagnir - áfangi 1

Málsnúmer 2023030859Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 27. júní 2024 vegna framkvæmda við Móahverfi á Akureyri.

Tómas Björn Hauksson verkefnastjóri nýframkvæmda og viðhalds gatna sat fundinn undir þessum lið.

2.Viðhald gatna 2024

Málsnúmer 2024061899Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. júní 2024 varðandi opnun tilboða í viðhald á Löngumýri. Eitt tilboð barst.

Tómas Björn Hauksson verkefnastjóri nýframkvæmda og viðhalds gatna sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Finn ehf. um viðhald á Löngumýri.

3.Úrgangsmál - gjaldskrá

Málsnúmer 2022110167Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 27. júní 2024 varðandi drög að gjaldskrá sorphirðu.

Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða gjaldskrá fyrir sorphirðu og leggur til að atvinnu- og menningardeild þjónustu- og skipulagssviðs verði falið að gera kynningarefni fyrir bæjarbúa.

4.Úrgangsmál - samningur um söfnun textíls

Málsnúmer 2022110167Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi um söfnun textíls.

Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samninginn.

5.Slökkvilið - stöðugildi 2024

Málsnúmer 2024070036Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 1. júlí 2024 varðandi fjölgun stöðugilda í slökkviliðinu um eitt.

Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fjölga stöðugildum hjá slökkviliðinu um eitt.

6.Hlíðarfjall - afþreying

Málsnúmer 2023050643Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi og viljayfirlýsingu varðandi salíbunubraut í Hlíðarfjalli.

Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna málið áfram með tilliti til ábendinga á fundinum.

7.Skjaldarvík - áform

Málsnúmer 2023020041Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi framtíðaráform vegna Skjaldarvíkur.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fela sviðsstjórna umhverfis- og mannvirkjasviðs að vinna málið áfram og auglýsa fasteignirnar til leigu og vísar ákvörðuninni um fullnaðarafgreiðslu til bæjarráðs.

8.Félagssvæði KA - knattspyrnuvöllur

Málsnúmer 2022110164Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 29. júní 2024 varðandi stöðuna á framkvæmdum við knattspyrnuvöllinn á félagssvæði KA.

9.Leikskóli í Hagahverfi

Málsnúmer 2023010583Vakta málsnúmer

Lögð fram umsögn og niðurstaða dómnefndar um tillögur í alútboði um hönnun og byggingu á leikskóla í Hagahverfi, Akureyri. Útboðið var sett upp í þremur fösum.


Í fyrsta fasa mat dómnefnd atriði og þætti tilboða sem tilgreindir voru í útboðslýsingu og voru þau tilboð sem uppfylltu grunnatriði útboðslýsingarinnar metin. Í fyrsta fasa hefur dómnefnd hvorki fengið að sjá verð né nöfn bjóðenda. Þær tillögur sem náðu lágmarkseinkunn í fyrsta fasa fara áfram í verðsamanburð í öðrum fasa.


Þar eru opnuð verð þeirra tilboða sem náðu lágmarkseinkunn. Einkunn tilboðanna hefur áhrif á samanburð tilboðanna til lækkunar á samanburðarverði. Það tilboð sem er með lægsta samanburðarverðið er metið sem hagstæðasta tilboðið og kemst þar með í fasa þrjú sem snýr að hæfni bjóðanda.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Húsheild Hyrnu ehf. á grundvelli tilboðs þeirra með fyrirvara um að þeir uppfylli kröfur á bjóðanda í þriðja og síðasta fasa útboðsins og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði.

10.Rif fasteigna 2024

Málsnúmer 2024030045Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 19. júní 2024 varðandi opnun verðfyrirspurna í niðurrif á Naustum 2. Eitt tilboð barst.
Umhverfis- og mannvirkjaráð hafnar tilboðinu í niðurrif á Naustum 2.

11.Fjárhagsáætlun UMSA - 2025

Málsnúmer 2024050867Vakta málsnúmer

Lagðar fram fyrstu tillögur að fjárhagsramma vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2025.

Ólafur Kjartansson V-lista óskar bókað:

Vegna umræðu um fjárhagsáætlun bendi ég á að ég tel að ódýrasta og skilvirkasta lausnin fyrir framtíðaraðstöðu jöfnunar- og skiptistöðvar strætó sé að fylgja upphaflega samþykktu skipulagi og byggja upp aðstöðuna þar í áföngum sem gætu fylgt þörfinni eftir því sem aðstæður þróast.

Fundi slitið - kl. 12:00.