Málsnúmer 2018060363Vakta málsnúmer
Erindi dagsett 3. júní 2018 frá sviðsstjóra fræðslusviðs vegna Skólaleiks, samstarfsverkefnis leik- og grunnskóla um fyrirkomulag leikskólastarfs hjá elsta árgangi leikskólans frá því að sumaleyfi lýkur og fram að skólabyrjun grunnskólans.
Óskað er eftir heimild til að greiða, vegna ofangreinds verkefnis, skólastjórum grunnskóla í samræmi við ákvæði greinar 2.2.1 í kjarasamningi SNS og Skólastjórafélags Íslands og samkomulag sem gert var í samstarfsnefnd viðsemjenda 23. maí 2007, frá og með hausti 2018.