Bæjarráð

3868. fundur 07. nóvember 2024 kl. 08:15 - 09:35 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir varaformaður
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2025-2028

Málsnúmer 2024040694Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2024-2027 - viðaukabeiðni

Málsnúmer 2023020943Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um gerð viðauka við tekjuáætlun Akureyrarbæjar 2024 og að hann verði lagður fram samhliða viðauka vegna nýrra kjarasamninga.

Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að gerður verði viðauki við tekjuáætlun vegna málsins að fjárhæð 1.055 m.kr. og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að vinna viðaukann.

3.Samningar KFUM og KFUK við Akureyrarbæ - 2023-2026

Málsnúmer 2023030903Vakta málsnúmer

Liður 3 í fundargerð fræðslu- og lýðheilsuráðs dagsettri 23. október 2024:

Lagður var fram samningur Akureyrarbæjar við KFUM og KFUK sem gildir til þriggja ára, frá 1. janúar 2024 - 31. desember 2026.

Gísli Rúnar Gylfason forstöðumaður sundlauga Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.

Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir samninginn og vísar honum áfram til bæjarráðs til samþykktar.

Ida Eyland Jensdóttir forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning Akureyrarbæjar við KFUM og KFUK og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

4.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2024

Málsnúmer 2024010317Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 953. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. október 2024.

Fundi slitið - kl. 09:35.