Umhverfis- og mannvirkjaráð

171. fundur 15. október 2024 kl. 08:15 - 12:17 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir formaður
  • Bjarney Sigurðardóttir varaformaður
  • Þórhallur Harðarson
  • Snæbjörn Sigurðarson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Snæbjörn Sigurðarson B-lista sat fundinn í forföllum Ingimars Eydal.
Jón Hjaltason óháður sat fundinn í forföllum Höllu Birgisdóttur Ottesen F-lista.

1.Áfangastaðaáætlun Norðurlands - áhersluverkefni

Málsnúmer 2024100121Vakta málsnúmer

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála og María Helena Tryggvadóttir verkefnastjóri ferðamála sátu fundinn undir þessum lið og kynntu áfangastaðaáætlun fyrir Akureyrarbæ.

2.Ferðamálasjóður - umsóknir

Málsnúmer 2024051830Vakta málsnúmer

Kynning á áætluðum umsóknum í Ferðamálasjóð, að bæta aðgengi og öryggi fyrir útivist í Hlíðarfjalli að sumarlagi og merkingar í Grímsey.

Einnig var kynning á hugmyndum um útsýnisstaði á þaki Hofs.

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála og María Helena Tryggvadóttir verkefnastjóri ferðamála sátu fundin undir þessum lið.

3.Fjárhagsáætlun UMSA - 2025

Málsnúmer 2024050867Vakta málsnúmer

Lögð fram og kynnt drög að framkvæmdaáætlun fyrir árin 2025-2028.

4.Fuglatalning 2024 - Naustaflói

Málsnúmer 2024091320Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla um fuglalíf við Hundatjörn í Naustaflóa vorið 2024.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.
Fylgiskjöl:

5.Fráveita í Kjarnaskógi

Málsnúmer 2024100416Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 14. október 2024 varðandi lausnir á fráveitu frá Hótel Kjarnalundi.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð telur mikilvægt að brugðist verði við hratt og örugglega og af fagmennsku, æskilegt er að framtíðarlausn verði komin á eigi síðar en fyrir lok árs 2025.

Ráðið styður bráðabirgðalausn númer eitt sem lögð er til í meðfylgjandi minnisblaði og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að vinna málið áfram í samræmi við það.

6.Umhverfismiðstöð - reglubundin endurnýjun tækja 2024-2025

Málsnúmer 2024091463Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. október 2024 varðandi fjárfestingu í veghefli fyrir ýmis heilsársverkefni umhverfismiðstöðvar.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar, Engilbert Ingvarsson verkstjóri strætisvagna og ferliþjónustu og Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.

7.Steinefni fyrir malbik og jöfnunarlag 2022-2024

Málsnúmer 2022030318Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki við samning um kaup á steinefnum fyrir malbik og jöfnunarlag varðandi nýtingu framlengingarákvæðis núverandi samnings um eitt ár.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar og Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis og mannvirkjaráð samþykkir framlenginguna.

8.Boginn - lýsing

Málsnúmer 2023020043Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. október 2024 varðandi endurnýjun á lýsingu í Boganum vegna skorts á varahlutum í núverandi lýsingu og hærri viðhaldskostnaðar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu.

9.Sundlaug Akureyrar - innilaug

Málsnúmer 2024030770Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. október 2024 vegna opnunar tilboða í endurnýjun á innilaug Sundlaugar Akureyrar. Ellefu tilboð bárust í fimm af sjö flokkum útboðsins. Engin tilboð bárust í stálsmíði og sögun og múrbrot.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka lægstu gildu tilboðunum í lagnir, raflagnir og múrverk og hafnar tilboðum í húsasmíði og blikksmíði þar sem þau voru hátt yfir kostnaðaráætlun.

Í lögnum er samþykkt að semja við Lagnastýringu ehf. að upphæð kr. 36.838.600.

Í raflögnum er samþykkt að semja við Rafeyri ehf. að upphæð kr. 14.738.715.

Í múrverki er samþykkt að semja við Múrey ehf. að upphæð kr. 36.049.500.

Biðtími samningsgerðar er 5 dagar.

10.Slökkviliðið á Akureyri - viðhald á húsnæði

Málsnúmer 2022051057Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 10. október 2024 varðandi breytingar á slökkvistöðinni til þess að mæta fjölgun í liðinu og kynjasamsetningu þess.

11.Hlíðarfjall - yfirferð vetrar

Málsnúmer 2024050866Vakta málsnúmer

Lögð fram minnisblöð dagsett 7. og 11. október 2024 varðandi lengri opnunartíma á fimmtudögum og samantekt á viðhaldi á mannvirkjum í Hlíðarfjalli.

Fundi slitið - kl. 12:17.