Umhverfis- og mannvirkjaráð

170. fundur 01. október 2024 kl. 08:15 - 11:56 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir formaður
  • Bjarney Sigurðardóttir varaformaður
  • Þórhallur Harðarson
  • Ingimar Eydal
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
  • Heimir Sigurpáll Árnason áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Ófyrirséð viðhald 2023 og 2024

Málsnúmer 2022120691Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 26. september 2024 varðandi framlengingu verksamninga um ófyrirséð viðhald fyrir umhverfis- og mannvirkjasvið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja verksamninga í öllum flokkum í ófyrirséðu viðhaldi um eitt ár eða til 31. desember 2025 nema í blikksmíði sem verður boðin út aftur.

2.Efniskaup 2023 og 2024

Málsnúmer 2022120692Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 26. september 2024 varðandi framlengingu samninga á efniskaupum umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja samninga um efniskaup um eitt ár eða til 31. desember 2025 við alla efnissala.

3.Reglubundið eftirlit með brunavörnum 2023-2025

Málsnúmer 2023030205Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 26. september 2024 varðandi framlengingu verksamnings um reglubundið eftirlit með brunaviðvörunarkerfum Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja samning um eftirlit með brunaviðvörunarkerfum Akureyrarbæjar um eitt ár eða til 31. desember 2025.

4.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2024100376Vakta málsnúmer

Afgreiðsla málsins er trúnaðarmál og fært í trúnaðarmálabók umhverfis- og mannvirkjaráðs.

5.Þjóðvegir á Akureyri - forgangsröðun framkvæmda

Málsnúmer 2024091322Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar verkefnalisti varðandi framtíðarsýn sameiginlegra verkefna Akureyrarbæjar og Vegagerðarinnar.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sat fundinn undir þessum lið.

6.Úrgangsmál - rekstur grenndarstöðva og gámasvæðis

Málsnúmer 2022110167Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 26. september 2024 varðandi útboð á rekstri grenndarstöðva og gámasvæðis á Akureyri.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sátu fundinn undir þessum lið.

7.Fjárhagsáætlun UMSA - 2025

Málsnúmer 2024050867Vakta málsnúmer

Lagðar fram gjaldskrár fyrir árið 2025 vegna umhverfis- og mannvirkjasviðs.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðar gjaldskrár fyrir sitt leyti fyrir árið 2025 og vísar þeim til bæjarráðs.

8.Fjárhagsáætlun UMSA - 2025

Málsnúmer 2024050867Vakta málsnúmer

Lagðar fram rekstraráætlanir allra deilda umhverfis- og mannvirkjasviðs.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar, Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð, Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli, Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar, Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar, Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála og Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sátu fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 11:56.