Málsnúmer 2020050123Vakta málsnúmer
Fundargerð Hverfisráðs Hríseyjar nr. 135 frá 30. apríl sl. var lögð fyrir bæjarráð þann 7. maí sl. Í fyrsta fundarlið er tekið fyrir innkomið bréf frá Ferðamálafélagi Hríseyjar og hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu í Hrísey þar sem kemur fram að rekstraraðilar í ferðaþjónustu hafi miklar áhyggjur af komandi sumri. Í Hrísey er hafin vinna við að búa til skemmtilegar pakkaferðir til Hríseyjar með góðum afsláttum fyrir fólk sem kýs að nota hér ferðaávísun, sem ríkisstjórnin ætlar að gefa út. Jafnframt kemur fram:
Til að styðja við þetta átak okkar og renna styrkari stoðum undir atvinnulífið í eyjunni, förum við þess á leit við Akureyrarbæ að hann styrki okkur með því
að greiða fargjöld í Hríseyjarferjuna fyrir alla í einn mánuð í sumar. Slík ráðstöfun myndi skila miklu til eyjarinnar og yrði gott markaðsátak sem hægt
væri að ráðast í vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Við erum þess fullviss að margir íbúar á Norðurlandi sem ekki hafa komið í Hrísey myndu nýta sér þetta tilboð og einnig aðrir landsmenn.
Hverfisráð styður erindið heilshugar og vísar því áfram til bæjarráðs.
Niðurstaða bæjarráðs var að vísa erindinu til stjórnar Akureyrarstofu.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að leita afbrigða við útsenda dagskrá og setja á dagskrá mál nr. 2019030063 Barnamenningarhátíð á Akureyri. Var það samþykkt.