Liður 2 í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dagsettri 14. maí 2020:
Minnisblað deildarstjóra Akureyrarstofu, safnstjóra Minjasafnsins og formanns stjórnar Iðnaðarsafnsins lagt fram til umræðu.
Sóley Björk Stefánsdóttir formaður stjórnar Iðnaðarsafnsins mætti á fundinn og fór yfir stöðu og framtíð Iðnaðarsafnsins.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir afstöðu bæjarráðs og stjórnar Minjasafnsins til þeirrar tillögu sem kemur fram í framlögðu minnisblaði.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.