Málsnúmer 2016120092Vakta málsnúmer
Nú er unnið að endurnýjun samninga við Leikfélag Akureyrar, Menningarfélagið Hof og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sem saman mynda Menningarfélag Akureyrar (MAk). Á sameiginlegum fundi stjórna félaganna var ákveðið að MAk færi með samningsumboð fyrir félögin þrjú. Samþykkt var jafnframt að leggja til við Akureyrarbæ að gerður verði framlengingarsamningur sem gildi út næsta ár sem er síðasta ár þeirrar tilraunar sem rekstur MAk felur í sér. Framkvæmdastjóri Akureyrarstofu hefur unnið að samningsdrögum með framkvæmdastjóra og formanni stjórnar MAk.
Anna Hildur Guðmundsdóttir L-lista boðaði forföll. Varamaður komst ekki í hennar stað.