Bæjarstjórn

3553. fundur 19. nóvember 2024 kl. 16:00 - 16:14 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Heimir Örn Árnason
  • Hlynur Jóhannsson
  • Jón Hjaltason
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Andri Teitsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá

1.Breytingar í nefndum - kjörstjórn

Málsnúmer 2024110651Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga Höllu Bjarkar Reynisdóttur L-lista um breytingu á skipan fulltrúa í kjörstjórn. Einar Hólm Davíðsson verði varamaður í stað Tinnu Guðmundsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2024-2027 - viðauki

Málsnúmer 2023020943Vakta málsnúmer

Liður 2 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 14. nóvember 2024:

Lagður fram viðauki 6.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttur forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir viðauka 6 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Viðaukinn er vegna fjölgunar stöðugilda í Skógarlundi til að mæta auknum notendafjölda, samtals 7,0 m.kr., búnaðarkaupa vegna endurbóta í Glerárgötu 26, samtals 7,0 m.kr. sem færast á efnahagsreikning, breytinga á kjarasamningum á árinu samtals 349,1 m.kr. og uppfærðrar úthlutunaráætlunar Jöfnunarsjóðs og aukinnar staðgreiðslu, samtals kr. 1.055 m.kr. Samhliða viðauka er gerð leiðrétting vegna nýrra salerna í Lystigarðinum sem færð er af rekstri yfir á fjárfestingu, launaáætlunar í sameiginlegum kostnaði 75 m.kr., alþingiskosninga 14,0 m.kr. rekstrarútgjöld og tekjur og tilfærslu fjárfestinga í vélaskemmu úr Hlíðarfjalli yfir á Fasteignir Akureyrar, samtals 250 m.kr. Lítilsháttar breytingar verða á áætluðum fjármagnsliðum milli fyrirtækja í a-og b- hluta. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar hækkar um 634 m.kr. og handbært fé í árslok hækkar um 617 m.kr.

Heimir Örn Árnason kynnti.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Háskólasvæði - umsókn um skipulag

Málsnúmer 2024101385Vakta málsnúmer

Liður 3 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 13. nóvember 2024:

Erindi dagsett 31. október 2024 þar sem að Hildur Steinþórsdóttir fh. FÉSTA leggur fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Háskólans á Akureyri til samræmis við niðurstöður samkeppni um uppbyggingu á stúdentagörðum. Í breytingunni er gert ráð fyrir að byggingarmagn lóðar D hækki úr 5.200 fm í 7.400 fm og að byggingar verði þrjár í stað tveggja. Þá er einnig gert ráð fyrir að fjöldi bílastæða miði við 1 bílastæði á hverjar 5 íbúðaeiningar.

Er jafnframt óskað eftir því að lóðagjöld verði reiknuð út frá byggðum fermetrum en ekki út frá hámarksbyggingarmagni lóða.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi og að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Afgreiðslu varðandi ósk um að gjaldtaka miðist við byggða fermetra en ekki hámarksbyggingarmagn er frestað.

Hulda Elma Eysteinsdóttir kynnti.

Til máls tóku Andri Teitsson og Jón Hjaltason.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi og að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Bæjarstjórn - áætlun um fundi 2022-2026

Málsnúmer 2022060869Vakta málsnúmer

Lögð fram áætlun um fundi bæjarstjórnar 2025.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti.

Til máls tók Jón Hjaltason.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða fundaáætlun fyrir 2025.

5.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2023010626Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 25. og 31. október og 8. nóvember 2024
Bæjarráð 31. október, 7. og 14. nóvember 2024
Fræðslu- og lýðheilsuráð 23. október 2024
Skipulagsráð 13. nóvember 2024
Umhverfis- og mannvirkjaráð 5. nóvember 2024

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 16:14.