Bæjarstjórn

3551. fundur 15. október 2024 kl. 16:00 - 16:17 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Heimir Örn Árnason
  • Hlynur Jóhannsson
  • Jón Hjaltason
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Andri Teitsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Olga Margrét Kristínard. Cilia lögfræðingur
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá
Forseti leitar í upphafi fundar afbrigða frá útsendri dagskrá þannig að við bætist nýr dagskrárliður númer 1, breytingar í nefndum - velferðarráð, og að liður 4 í útsendri dagskrá, Þórssvæði - umsókn um skipulag, falli brott þar sem uppfærð gögn vantar, og var það samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

1.Breytingar í nefndum - velferðarráð

Málsnúmer 2024100569Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga Huldu Elmu Eysteinsdóttur L-lista um breytingu á skipan fulltrúa í velferðarráði. Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir verði varamaður í stað Önnu Fanneyjar Stefánsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Bæjarstjórn - áætlun um fundi 2022-2026

Málsnúmer 2022060869Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að næsti bæjarstjórnarfundur 29. október verði haldinn í Hrísey í tilefni af 20 ára sameiningarafmæli Akureyrar og Hríseyjar.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Rangárvellir - umsókn um lóð

Málsnúmer 2024080163Vakta málsnúmer

Liður 11 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 9. október 2024:

Lögð fram umsókn Landsnets hf. um lóðina Rangárvelli 6. Lóðin er 4.049 fm að stærð og er nýtingarhlutfall lóðar 0.5.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Rangárvöllum 6 verði úthlutað til Landsnets án auglýsingar með vísun í heimild í gr. 2.3 í reglum um úthlutun lóða. Með vísun í fordæmi við úthlutun lóðarinnar Hlíðarvellir 3 er lagt til að gatnagerðargjald verði 15% sbr. heimild 1. mgr. 5.2. gr. í gjaldskrá gatnargerðar- og byggingarréttargjalds í Akureyrarbæ.

Andri Teitsson kynnti.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að lóðinni Rangárvöllum 6 verði úthlutað til Landsnets án auglýsingar með vísun í heimild í gr. 2.3 í reglum bæjarins um úthlutun lóða. Þá samþykkir bæjarstjórn jafnframt að gatnagerðargjald verði 15% sbr. heimild í 1. mgr. 5.2. gr. í gjaldskrá gatnargerðar- og byggingarréttargjalds í Akureyrarbæ.

4.Grímsey - atvinnumál

Málsnúmer 2023011140Vakta málsnúmer

Umræða um stöðu atvinnumála í Grímsey.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti.

Til máls tóku Jón Hjaltason og Halla Björk Reynisdóttir.

Grímsey er einstök eyja við heimskautsbaug þar sem hefur verið byggð frá landnámi og mikilvægt að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til þess að styðja við byggðarlagið.

Eins og staðan er nú er nær ómögulegt að halda uppi landvinnslu í eyjunni vegna landfræðilegrar stöðu. Á síðasta ári var ferjan í slipp í 12 vikur. Augljóst er að erfitt er því að treysta á ferjusiglingar með hráefni til og frá eyjunni.

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar skorar því á ríkisvaldið að framlengja undanþágu á vinnsluskyldu á sértækum byggðakvóta þannig að byggð megi haldast áfram í Grímsey.

5.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2023010626Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 4. og 9. október 2024
Bæjarráð 3. október 2024
Fræðslu- og lýðheilsuráð 25. september 2024
Skipulagsráð 9. október 2024
Umhverfis- og mannvirkjaráð 1. október 2024
Velferðarráð 9. október 2024

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 16:17.