Bæjarráð

3878. fundur 30. janúar 2025 kl. 08:15 - 10:41 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir varaformaður
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá

1.Afskriftir krafna 2024

Málsnúmer 2025011480Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga sviðsstjóra fjársýslusviðs dagsett 27. janúar 2025 um afskriftir krafna. Kröfurnar eru að mestu frá árunum 2021 og fyrri árum. Jafnframt eru um að ræða nokkrar yngri kröfur hjá gjaldþrota aðilum og einstaklingum sem fengið hafa greiðsluaðlögun. Samtals er um 566 kröfur að ræða að fjárhæð 12.013.534 krónur.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um afskriftir krafna.

2.Lífsgæðakjarni fyrir eldri borgara

Málsnúmer 2023090027Vakta málsnúmer

Rætt um uppbyggingu á lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra og Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð vísar málinu um lífsgæðakjarna til umræðu í skipulagsráði.

3.Stjórnsýslubreytingar 2024-2025 - samþykkt fyrir fræðslu- og lýðheilsuráð

Málsnúmer 2024080126Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur að breytingum á samþykkt fyrir fræðslu- og lýðheilsuráð.
Bæjarráð samþykkir tillögurnar og vísar þeim til bæjarstjórnar til staðfestingar.

4.Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2024-2025

Málsnúmer 2025011335Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 22. janúar 2025 frá matvælaráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutun byggðakvóta til Grímseyjar og Hríseyjar fiskveiðiárið 2024-2025. Sveitarfélögum er gefinn frestur til 21. febrúar nk. að senda ráðuneytinu tillögur að sérreglum um byggðakvóta í einstökum byggðarlögum.
Bæjarráð óskar eftir því að veitt verði undanþága í 6. gr. reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025 nr. 819/2024. Óskað er eftir því að vinnsluskylda á byggðakvóta verði felld niður í sérreglum Akureyrarbæjar um úthlutun byggðakvóta í Grímsey.

Rökin fyrir beiðninni eru einkum þau að Grímsey hefur verið skilgreind sem brothætt byggð og í dag er engin vinnsla starfandi í Grímsey en landaður afli er umtalsverður og er hann fluttur í burtu til vinnslu í landi.

Ekki hefur verið talinn grundvöllur til að reka vinnslu í eyjunni með það magn sem þar kemur á land í dag. Í dag eru nánast allir þeir sem stunda sjósókn og landa í Grímsey búsettir í eyjunni og allar útgerðirnar sem þar landa eru með lögheimili í eyjunni. Það þjónar hagsmunum byggðarinnar í Grímsey að vinnsluskyldan verði felld niður í ljósi núverandi stöðu annars yrði engum byggðakvóta úthlutað í eyjunni.

Ekki er óskað eftir breytingum á reglugerð um úthlutun byggðakvóta í Hrísey.

Bæjarráð vísað málinu til bæjarstjórnar.

5.Kennarasamband Íslands samkomulag

Málsnúmer 2024111549Vakta málsnúmer

Umfjöllun um stöðu kjaraviðræðna við aðildarfélög KÍ.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

6.Átak fyrir 18 - 25 ára

Málsnúmer 2025011473Vakta málsnúmer

Kynnt tillaga vinnuhóps að breytingum á fyrirkomulagi átaks fyrir 18-25 ára skólafólk.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur að breytingum á fyrirkomulagi átaks fyrir 18-25 ára skólafólk, með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

Fundi slitið - kl. 10:41.