Málsnúmer 2018110045Vakta málsnúmer
Umfjöllun um framkvæmd samninga um ræstingu á stofnunum Akureyrarbæjar.
Fram kom að samningar um ræstingu hafa í öllum tilvikum verið gerðir í kjölfar útboðs og eru alla jafna gerðir til fjögurra ára í senn. Í samningum Akureyrarbæjar er ákvæði um keðjuábyrgð samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar.
Ræstingafyrirtækin sem Akureyrarbær er með samninga við eru ekki að nýta sér þjónustu frá starfsmannaleigum heldur eru starfsmenn í öllum tilvikum ráðnir til viðkomandi fyrirtækis samkvæmt ákvæðum kjarasamnings Starfsgreinasambands Íslands við SA. Samkvæmt upplýsingum frá stéttarfélagi starfsmanna hefur framkvæmd á kjarasamningsákvæðum verið í ágætu lagi og ekkert komið upp á sem ástæða er til að taka til sérstakrar skoðunar.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða til að taka mál á dagskrá sem ekki var í útsendri dagskrá, 2018050236 Rekstrarsamningar íþróttamannvirkja og aðildarfélaga ÍBA 2019. Var það samþykkt.