Útboð - Þjónustuhús á Torfunefsbryggju

Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tilboðum í að byggja verkið Þjónustuhús á Torfunefsbryggju eins og því er lýst í útboðsgögnum.

Hér er um almennt útboð í aðalverktöku að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.

Um er að ræða nýbyggingu fyrir þjónustu, landtengingu og spennistöð, sem mun rísa á byggingarreitnum Torfunefsbryggju. Byggingin mun verða 167 m2 og mun hún skiptast upp í eftirfarandi hluta:

  • Þjónusturými HN
  • Inntaksrými lagna
  • Rými fyrir aðaldreifingu og rafbúnað og spennarými NO.

Um er að ræða einnar hæðar byggingu sem er byggð ofan á landfyllingu. Þak þjónustuhúss verður einnig útsýnispallur og áhorfendapallur fyrir viðburði.

Hafnasamlag Norðurlands áætlar eftirfarandi varðandi verkframkvæmdina sjálfa:

  • Áætluð undirritun samnings – 07.04.2025
  • Verklok – 01.06.2026

Nánari skil er varðar tímaáætlun eru gerð í útboðsgögnum, nánar tiltekið í eftirfarandi útboðsgagni:

  • 23037 - Torfunef – Útboðsáætlun

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar HÉR þann 10.03.2025.

Vinsamlegast athugið, nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins. Ekki er hægt að notast við Íslykil og ekki á að velja umboð fyrir fyrirtæki í innskráningunni heldur persónuna sjálfa.

Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar, eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 31.03.2025 (kl. 12:00).

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan