Keppt í samhliða svigi. Mynd af heimasíðu Skíðasambands Íslands.
Unglingameistaramót Íslands 2025 verður haldið í Hlíðarfjalli um helgina. Setning mótsins er í kvöld kl. 20 en keppt verður frá föstudegi til sunnudags.
Keppt verður í svigi, stórsvigi og samhliða svigi í flokkum 12-13 ára og 14-15 ára stúlkna og drengja.
Aðstæður eru með betra móti í Hlíðarfjalli miðað við það sem verið hefur í vetur og veðrið leikur við hvurn sinn fingur. Hins vegar vantar meiri snjó nokkuð víða og þá sérstaklega á efri hluta svæðisins. Allar brekkur eru opnar og færið það sem kallað er gott vorfæri.
Nánari upplýsingar um mótið og keppendur er að finna á heimasíðu Skíðasambands Íslands.