Stóri plokkdagurinn verður haldinn sunnudaginn 28. apríl um land allt og því sniðugt að kynna sér helstu upplýsingar og jafnvel hita upp.
Akureyringar eru hvattir til að hreinsa (plokka) rusl í sínu nærumhverfi enda er ýmislegt sem kemur í ljós þegar snjórinn hverfur á vorin. Plokk er frábær útivera og gefandi verkefni sem eflir núvitund og gerir umhverfinu gott. Plokkið kostar ekkert og kallar ekki á búnað eða tæki nema þá helst ruslapoka og hanska.
Facebook-hópurinn Plokk á Akureyri er sniðugur vettvangur til að hafa samband við aðra plokkara, merkja sér svæði til að hreinsa og láta vita hvernig gengur í máli og myndum.
Plokkarar eru vinsamlega beðnir um að nota glæra ruslapoka í plokki sínu til að auðvelda flokkun og urðun. Plokkarar eru jafnframt beðnir um að tilkynna um þá staði þar sem pokar eru skildir eftir í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins eða með Akureyrarappinu, þar sem hægt er að taka mynd með nákvæmri staðsetningu. Í gegnum ábendingagátt er einnig tilvalið að benda sveitarfélaginu á svæði sem þarf að hreinsa sérstaklega eða koma með ábendingar um annað það sem betur má fara.
Stærri hópar sem hafa áhuga á að plokka er bent á að hafa samband við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar til að fá ráðleggingar um svæði sem þörf er á að plokka. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið jbg@akureyri.is.
Nokkur góð ráð:
- Plokkum og hreyfum okkur í leiðinni – æfing dagsins
- Klæðum okkur eftir veðri
- Notum hanska og tangir ef þær eru til. Hægt að fá lánaðar tangir á Amtsbókasafninu á Akureyri og á umhverfismiðstöð Rangárvöllum (takmarkað magn í boði)
- Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá
- Virkjum fjölskylduna, vini og nágranna en hver á sínum hraða
Góða plokk-skemmtun á sunnudag!