Herra Hnetusmjör og fleiri stjörnur í Hlíðarfjalli

Stjörnur á borð við  Doctor Victor og Herra Hnetusmjör taka þátt í viðburðinum.
Stjörnur á borð við Doctor Victor og Herra Hnetusmjör taka þátt í viðburðinum.
Gleðin mun ráða ríkjum í Hlíðarfjalli þann 1. mars þegar stærsta „After ski“ á Íslandi fer fram í fjallinu.
 
After ski er hefð þar sem skíða- og brettafólk fagnar deginum með skemmtun eftir útiveruna. „Þetta fyrirbæri er vel þekkt á helstu skíðasvæðum heims og nú er komið að Akureyri – stærsta skíðabæ landsins,“ segir Halldór Kristinn Harðarson, verkefnastjóri viðburðarins.
Dagskráin hefst í hádeginu með fjölskyldupartíi við hótelið, þar sem plötusnúður mun halda uppi stuðinu. „DJ Ayobe heldur svo upphitunarpartí í Strýtuskálanum, þar sem gestir gera sig klára fyrir ferðina niður á hátíðarsvæðið, þar sem veislan hefst formlega,“ segir Halldór Kristinn en partíið verður sett klukkan 15 þar sem stjörnur á borð við Doctor Victor og Herra Hnetusmjör stíga á stokk.
„Allir eru velkomnir í fjölskyldupartíið og á stærsta After ski landsins en lyftupassi er nauðsynlegur fyrir aðgang að Strýtuskálanum. Við hlökkum til að taka á móti heimamönnum og þeim sem leggja leið sína norður til að upplifa eitt skemmtilegasta skíðasvæði landsins. Sjáumst í fjallinu,“ segir Halldór að lokum.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan