Ritlistakvöld með Erpi Eyvindarsyni

Enginn annar en Erpur Eyvindarson, einnig þekktur sem Blaz Roca, verður leiðbeinandi á ritlistakvöldi Ungskálda í Lystigarðinum miðvikudagskvöldið 26. mars.

Erpur er einn þekktasti rappari landsins og meðlimur XXX Rottweilerhundanna, brautryðjenda íslensks rapps. Auk tónlistar hefur hann mikla reynslu af ritstjórn, handrita- og greinarskrifum og hefur stýrt bæði sjónvarps- og útvarpsþáttum.

Kvöldið er opið ungu fólki á aldrinum 16–25 ára sem hefur áhuga á ritlist og er þátttaka ókeypis. Frábært tækifæri til að læra af reyndum listamanni, kynnast öðrum skrifandi ungmennum og jafnvel lesa upp eigin verk!

Þetta er fyrra af tveimur ritlistakvöldum í tilefni af Ungskáldum 2025. Seinna kvöldið verður auglýst síðar.

Veitingar verða í boði fyrir skráða gesti.
Skráning fer fram hér.

Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Nánari upplýsingar á ungskald.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan