Ritlistakeppni Ungskálda 2024 er hafin

Ritlistakeppni Ungskálda 2024 er hafin og frestur til að senda inn texta er til og með 31. október.

Ungskáld er verkefni á Akureyri sem hefur það að markmiði að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Verkefnið hófst árið 2013 og er það eina sinnar tegundar á landinu.

Staðið er fyrir ritlistakeppni þar sem veitt eru peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að vera á íslensku og eigið frumsamið hugverk. Nánari upplýsingar um ritlistakeppnina, ásamt rafrænu umsóknarblaði má nálgast hér.

Ritlistakvöld Ungskálda verður miðvikudagskvöldið 2. október á LYST í Lystigarðinum frá kl. 20-22. Að þessu sinni er leiðbeinandinn Ævar Þór Benediktsson sem er einn afkastamesti og vinsælasti höfundur landsins á sviði barna- og unglingabóka. Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist og því að kostnaðarlausu. Frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, kynnast skrifum annarra og jafnvel lesa upp sín eigin verk. Veitingar eru í boði fyrir skráða gesti. Hægt er að skrá sig hér.

Í framhaldi af ritlistakeppninni verður kaffihúsakvöld Ungskálda haldið á LYST í Lystigarðinum (tímasetning kaffihúsakvöldsins verður tilkynnt bráðlega á ungskald.is).

Á degi íslenskrar tungu, laugardaginn 16. nóvember kl. 14, tilkynnir dómnefnd um úrslit í ritlistasamkeppni Ungskálda 2024 í Amtsbókasafninu á Akureyri. Öll velkomin.

Allar nánari upplýsingar og skráning á ungskald.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan