Rúmlega 5100 manns hafa sótt sér Íbúaapp Akureyrarbæjar.
Rúmlega 5100 manns hafa nú sótt sér Íbúaapp Akureyrarbæjar. Með appinu er hægt að greiða fyrir stöðumæli, fylgjast með fréttum og tilkynningum í rauntíma og nota rafrænt gámakort. Þar er einnig sérstök ábendingagátt þar sem íbúar geta sent ábendingar til sveitarfélagsins.
Notendur hafa verið duglegir að nýta ábendingagáttina, sem er þakkarvert, en mikilvægt er að skrá inn staðsetningu með ábendingum svo starfsfólk bæjarins geti brugðist rétt við. Hægt er að senda inn ábendingar nafnlaust, en þau sem skrá nafn og netfang fá tölvupóst þegar málið hefur verið afgreitt.
Íbúaappið er aðgengilegt fyrir bæði Apple og Android stýrikerfi. iPhone notendur finna það með því að leita að Akureyrarbær í App Store, en Android notendur í Play Store.