Mikil svifryksmengun við helstu umferðaræðar

Svifryksmengun mælist nú langt yfir heilsuverndarmörkum en unnið er að því að rykbinda og vonast til að ástandið lagist þegar líður á daginn.

Ekki er spáð úrkomu næstu daga og því er eina ráðið að rykbinda og þvo göturnar.

Íbúar eru hvattir til þess að draga úr akstri eins og kostur er, til dæmis með því að nýta sér almenningssamgöngur, sameinast í bíla, hjóla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta.

Aldraðir, börn og fólk sem þolir illa álag á öndunarfæri ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni fjölfarinna umferðagatna.

Hægt er að fylgjast með mælingum á styrk svifryks og annarra mengunarefna við Strandgötu á vefnum loftgæði.is.

Uppfært kl. 12.27: Um hádegi hafði magn svifryks minnað verulega og nálgast það nú að vera innan heilsuverndarmarka.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan