Samþykkt hefur verið að auglýsa aftur eftir kauptilboði í byggingarrétt 25 einbýlishúsalóða og 3 raðhúsalóða í Móahverfi.
Við skipulag svæðisins var lögð áhersla á að leggja grunninn að nýju og vönduðu íbúðahverfi með fjölbreyttum íbúðagerðum og grænum svæðum sem verður aðlaðandi til búsetu. Áhersla er á góðar tengingar gangandi og hjólandi innan hverfis, við aðliggjandi hverfi og útivistarsvæði.
Í hverfinu í heild er gert ráð fyrir á bilinu 960-1.100 íbúðum og er þegar búið að úthluta fjölbýlis-, rað-, par- og einbýlishúsalóðum fyrir um 300 íbúðir.
Yfirlitsmynd af auglýstum lóðum
Úthlutunarskilmálar
Deiliskipulagsuppdráttur
Greinargerð deiliskipulags
Tilboðum í byggingarrétt lóða skal skila rafrænt hér í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 12 fimmtudaginn 30. janúar 2025.
Hér má nálgast leiðbeiningar um hvernig skila megi inn rafrænu tilboði/umsókn.
Eftirfarandi eru þær lóðir sem eru í auglýsingu. Með því að velja hlekk lóðar má nálgast útboðsgögn og í framhaldinu skila inn tilboði.
Einbýlishúsalóðir:
Raðhúsalóðir: