Ljósin tendruð á jólatrénu við skemmtilega opnun Jólatorgsins

Frostið beit í kinnar þegar Jólatorgið var opnað með viðhöfn á Ráðhústorgi í gær, á fyrsta sunnudegi í aðventu. Hátíðleg dagskrá fyllti torgið af gleði og að sjálfsögðu létu jólasveinarnir sig ekki vanta og skemmtu gestum á öllum aldri.

Hápunkturinn var svo þegar Embla Þórhildur, 10 ára, og Benjamín Loki, 8 ára, tendruðu ljósin á jólatréi bæjarbúa.

Jólatorgið verður áfram opið næstu tvær helgar með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Þau sem vilja kynna sér viðburðina nánar geta heimsótt www.jolatorg.is.

Hilmar Friðjónsson, ljósmyndari, var á staðnum og tók myndir af þessum skemmtilega degi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan