Hríseyjarhátíðin er um helgina

Mynd af heimasíðu Hríseyjar.
Mynd af heimasíðu Hríseyjar.

Hin árlega Hríseyjarhátíð verður haldin um helgina og er dagskráin fjölskylduvæn og fjölbreytt.

Boðið verður upp á óvissuferðir fyrir ólíka aldurshópa, ratleik, kvöldvöku, tónlist og varðeld með brekkusöng.

Veðurspáin fyrir helgina er með allra besta móti og reiknað með töluverðum hlýindum, þurru veðri en óvíst er með sólskinið.

Á heimasíðu Hríseyjar má nálgast allar upplýsingar um hátíðina, ferjusiglingar og þjónustu í eyjunni.

Aðgangur er ókeypis.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan