Hluti Hafnarstrætis lokaður út apríl vegna framkvæmda

Vegna framkvæmda við húsin að Hafnarstræti 73-75 og 80-82 er talið nauðsynlegt að loka fyrir alla umferð, bæði gangandi og akandi, frá Hafnarstræti 71 að norðurgafli Hafnarstrætis 79.

Lokunin hefur þegar tekið gildi og stendur út apríl 2025. Umferð suður Hafnarstræti verður beint um hjáleið sem liggur til austurs frá Hafnarstræti að Austurbrú og þaðan til suðurs  og verður sá hluti Austurbrúar einstefna á meðan lokunin er í gildi. Gert er ráð fyrir að ákvörðun um umferðarstýringu svæðisins verði endurskoðuð fyrir lok apríl.

Á meðfylgjandi mynd má sjá útfærslu lokunar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan