Hjólafjör og fjölskyldudagur í Kjarnaskógi á bílllausa daginn

Nú er Evrópska samgönguvikan í fullum gangi en vikunni lýkur á bílllausa daginn á sunnudaginn.
 
Í tilefni samgönguviku verður hjólafjör og fjölskyldudagur í Kjarnaskógi á sunnudaginn á vegum Akureyrarbæjar og Hjólreiðafélags Akureyrar. 
 
Viðburðurinn hefst klukkan 14 og eru gestir hvattir til að koma hjólandi í skóginn. Gera má ráð fyrir að það taki um 20-30 mínútur fyrir miðlungsvant hjólreiðafólk að hjóla í Kjarnaskóg frá Ráðhústorgi svo dæmi sé tekið. 
 
Hist verður við leikvöllinn sunnan við strandblakvellina, völundarhúsið og ærslabelginn og þaðan verður hjólað saman um nokkra stíga í skóginum með fólk frá hjólreiðafélaginu í broddi fylkingar. Þessi hjólatúr hentar öllum, ungum sem öldnum.
 
Að hjólafjöri loknu verður boðið upp á grillaðar pylsur og safa meðan birgðir endast.
 
Sjáumst hress í Kjarnaskógi á sunnudaginn! Öll velkomin!
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan