Fyrsta blokkin rís í Móahverfi

Lautarmói 1. Mynd frá BE húsbyggingum.
Lautarmói 1. Mynd frá BE húsbyggingum.
Fyrsta blokkin er risin í Móahverfinu – Lautarmói 1. Í Lautarmóa 1-3-5 verða 50 íbúðir samtals, með sameiginlegum bílakjallara. Áætluð afhending er 2026.
 
Móahverfi er staðsett fyrir ofan Síðuhverfi á Akureyri. Þar verða um 1.100 íbúðir sem hýsa munu um 2.400 manns. Deiliskipulag var samþykkt í bæjarstjórn Akureyrar 10. maí 2022.
 
Um er að ræða nýtt íbúðahverfi sem nær yfir um 45 hektara lands þar sem er skipulögð byggð með bæði fjölbýli og sérbýli.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan