Forsetakosningar laugardaginn 1. júní 2024

Forsetakosningar fara fram laugardaginn 1. júní næstkomandi. Kjörstaðir í Akureyrarbæ eru í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hríseyjarskóla og í Félagsheimilinu Múla í Grímsey. Akureyrarbæ verður skipt í 12 kjördeildir, 10 á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey. Skipting kjósenda í kjördeildir fer eftir búsetu samkvæmt skráðu lögheimili hjá Þjóðskrá þann 24. apríl sl. og eru kjósendur beðnir um að kynna sér í hvaða kjördeild þeim ber að kjósa. Hægt er að fletta upp í kjörskrá á vef Þjóðskrár á slóðinni: www.kosning.is

Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur eigi síðar en klukkan 22:00.

Kjósendum í Hrísey og Grímsey er bent á að kjörstað kann að verða lokað fyrr að uppfylltum skilyrðum 91. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Þeir eru því hvattir til að mæta á kjörstað fyrir kl. 14:00. Kjörstaðir í Hrísey og Grímsey verða að lágmarki opnir til kl. 14:00 nema allir á kjörskrá hafi kosið fyrir þann tíma.

Kjósendum ber að sýna persónuskilríki eða önnur kennivottorð á kjörfundi.

Á kjördag hefur kjörstjórn aðsetur á bókasafni VMA. Netfang kjörstjórnar er kjorstjorn@akureyri.is og símanúmer er 895-4711. 

Kjörstjórn vekur athygli á því að þeir sem eru á kjörskrá utan Akureyrar geta kosið utankjörfundar að Geislagötu 5 við Bankastíg (gamla Arionbankahúsið) til kl. 17:00 á kjördag.

Kjörstjórn Akureyrar:
Helga Eymundsdóttir
Júlí Ósk Antonsdóttir
Rúnar Sigurpálsson

Smelltu hér til að skoða auglýsingu um forsetakosningar og götuskrá í kjördeildum. 

Athugið að í auglýsingu hafði áður verið gert ráð fyrir að gengið væri inn í kjördeild 6 að norðan en rétt er að gengið verður inn í kjördeildir 1-6 að vestan.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan