Akureyrarbær hefur ákveðið að flytja öll bankaviðskipti sín til Glitnis og tekur samningurinn til allra bankaviðskipta Akureyrarbæjar að undanskildum langtímalánum bæjarins. Samningur þessa efnis var undirritaður í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar í dag.
Glitnir mun hafa umsjón með útlána- og innlánaviðskiptum bæjarins, innheimtuþjónustu, greiðsluþjónustu og annarri almennri bankaþjónustu. Einnig tekur samningurinn til stofnana bæjarins og Norðurorku hf.
Á fundi Bæjarráðs Akureyrar þann 9. mars var samþykkt að ganga til viðræðna við Glitni um bankaviðskipti Akureyrarbæjar. Þetta var samþykkt í framhaldi af útboði á viðskiptunum sem í tóku þátt allir bankar og sparisjóðir á Eyjafjarðarsvæðinu. Tilboð Glitnis var metið hagstæðast og því var ákveðið að ganga til samninga við bankann. Þetta er í fyrsta skipti sem Akureyrarbær flytur bankaviðskipti sín milli viðskiptabanka frá árinu 1904.

Frá undirritun samninga í Hlíðarfjalli: Sitjandi eru talið f.v. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, og Franz Árnason, forstjóri Norðurorku. Fyrir aftan þá standa Jóhannes Hauksson, viðskiptastjóri hjá Glitni, Ingi Björnsson, útibússtjóri Glitnis á Akureyri, og Dan Jens Brynjarsson, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Akureyrarbæjar.