800 nemendur á Starfamessu í dag

Í dag stendur yfir Starfamessa í Háskólanum á Akureyri. Á starfamessu koma fjölmörg fyrirtæki og stofnanir saman á einum stað til að kynna sig og störf sín fyrir elstu nemendum grunnskóla, háskólanemum og öðrum áhugasömum.

Þetta er í sjöunda sinn sem starfamessa er haldin af náms- og starfsráðgjöfum grunnskólanna á Akureyri í samstarfi við HA og SSNE. Markmið hennar er að kynna fjölbreytt störf og veita nemendum betri innsýn í framtíðarmöguleika sína.

Um 800 grunnskóla nemendur sækja viðburðinn en einnig er tilvalið fyrir háskólanema og aðra áhugasama að nýta tækifærið og kynna sér fjölbreytt fyrirtæki og störf.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan