Velferðarráð

1355. fundur 14. september 2022 kl. 14:00 - 16:57 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson
  • Alfa Dröfn Jóhannsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Málfríður Stefanía Þórðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Velferðarsvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2022

Málsnúmer 2022080456Vakta málsnúmer

Velferðarráð heimsótti skammtíma- og skólavistun í Þórunnarstræti 99.

Anna Einarsdóttir forstöðumaður tók á móti ráðinu, sýndi húsnæðið og sagði frá starfseminni.

2.Skammtímaþjónusta - húsnæðismál

Málsnúmer 2022070190Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað Önnu Einarsdóttur forstöðumanns og Karólínu Gunnarsdóttur þjónustustjóra dagsett 31. ágúst 2022 um húsnæðisþörf skammtíma- og frístundaþjónustu í Þórunnarstræti 99.

Anna Einarsdóttir forstöðumaður í Þórunnarstræti 99 sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð leggur áherslu á að skammtíma- og frístundaþjónusta í Þórunnarstræti 99 fái afnot af kjallara húsnæðisins og óskar eftir aðkomu bæjarstjóra að málinu.

3.Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2023

Málsnúmer 2022081006Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun velferðarsviðs fyrir árið 2023.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.

4.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2022

Málsnúmer 2022041998Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar rekstur velferðarsviðs fyrstu 7 mánuði ársins.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.

5.NPA - tímagjald 2022

Málsnúmer 2021120903Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um breytingu á tímagjaldi í NPA fyrir árið 2022.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir að tímagjald NPA samninga á Akureyri taki mið af útreikningum NPA miðstöðvarinnar. Breytingin verði afturvirk frá 1. janúar 2022. Málinu vísað til viðaukagerðar.

6.Viðauki vegna NPA

Málsnúmer 2022090388Vakta málsnúmer

Lögð er fram beiðni til bæjarráðs um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að hækka fjárhagsáætlun Notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) um upphæð kr. 29,4 milljónir vegna ársins 2022.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.

7.Barnaverndarlög - breytingar

Málsnúmer 2022010395Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi vegna umdæmisráðs barnaverndar sem mun taka til starfa 1. janúar 2023.

Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður barnaverndar sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð Akureyrarbæjar samþykkir að standa að umdæmisráði barnaverndar með öðrum sveitarfélögum á landsbyggðinni.

Ráðið veitir starfsmönnum velferðarsviðs umboð til að vinna að framgangi málsins og að undirbúningi og gerð samnings sem enn er ekki fullmótaður.

8.Rammi að samkomulagi um samræmda móttöku flóttafólks

Málsnúmer 2022081254Vakta málsnúmer

Lagður fram rammi að samningi ríkis og sveitarfélaga um samræmda móttöku flóttamanna.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu og Gyða Björk Ólafsdóttir verkefnastjóri samræmdrar móttöku flóttamanna sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð felur starfsmönnum að ganga til viðræðna við ríkið um samning varðandi samræmda móttöku flóttafólks.

9.Framkvæmdaáætlun velferðarsviðs 2023 - 2026

Málsnúmer 2021090113Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að framkvæmda- og viðhaldsáætlun velferðarsviðs fyrir árin 2023 - 2026.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir framkvæmda- og viðhaldsáætlun velferðarsviðs.

Fundi slitið - kl. 16:57.