Ungmennaráð

55. fundur 02. október 2024 kl. 16:00 - 18:00 Rósenborg
Nefndarmenn
  • Aldís Ósk Arnaldsdóttir
  • Arna Lísbet Ásgeirsdóttir
  • Bjarki Orrason
  • Fríða Björg Tómasdóttir
  • Heimir Sigurpáll Árnason
  • Íris Ósk Sverrisdóttir
  • Leyla Ósk Jónsdóttir
  • Lilja Dögun Lúðvíksdóttir
  • Ólöf Berglind Guðnadóttir
  • París Anna Bergmann Elvarsd.
  • Rebekka Rut Birgisdóttir
Starfsmenn
  • Hafsteinn Þórðarson umsjónarmaður ungmennaráðs ritaði fundargerð
  • Arnar Már Bjarnason forvarna- og félagsmálafulltrúi
  • Ari Orrason forvarna- og félagsmálafulltrúi
Fundargerð ritaði: Hafsteinn Þórðarson fundarritari
Dagskrá

1.Mánaðarleg yfirferð

Málsnúmer 2022120502Vakta málsnúmer

Farið var yfir verkefni sem hafa átt sér stað frá því að ungmennaráð fundaði í byrjun september. Rætt var um ungmennaráðstefnu UMFÍ sem fór fram 20.- 22. september og nefndafundi sem fulltrúar ungmennaráðs sátu sem áheyrnarfulltrúar í september.

2.Gjaldfrjálsar máltíðir í grunnskólum

Málsnúmer 2024080099Vakta málsnúmer

Lagt var fram til upplýsingar bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um skilgreiningu á skólamáltíðum.
Ungmennaráð fagnar gjaldfrjálsum hádegismat í grunnskólum, en óskar eftir því að ávaxta- og mjólkuráskrift verði einnig gjaldfrjáls. Auk þess óskar ungmennaráð eftir því að allir skólar bjóði upp á morgunmat, t.d. hafragraut.

3.Bæjarstjórnarfundur ungmennaráðs 2024

Málsnúmer 2023030583Vakta málsnúmer

Farið var yfir bæjarstjórnarfund unga fólksins sem haldinn var í apríl 2024. Rætt var um niðurstöðu mála og hvort ungmennaráð vildi fylgja þeim betur eftir.

4.Fundir með nemendaráðum

Málsnúmer 2022120502Vakta málsnúmer

Rætt var um fundarröð með nemendaráðum grunnskólanna og framhaldsskólanna á Akureyri. Ungmennaráð ætlar að skipuleggja fundi með nemendaráðum í október og nóvember.

5.Íþróttabandalag Akureyrar - tímaúthlutun

Málsnúmer 2022080965Vakta málsnúmer

Lögð var fram til kynningar tímaúthlutun til aðildarfélaga ÍBA í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar fyrir veturinn 2024-2025.

6.Styrkir

Málsnúmer 2022120502Vakta málsnúmer

Rætt var um möguleika ungmennaráðs til þess að sækja sér styrk fyrir viðburði innanlands. Ungmennaráð ætlar að sækja um styrk til þess að hitta önnur ungmennaráð á landinu og efla tengsl milli ráða.

7.Ungmennaráð - mál frá fræðslu- og lýðheilsuráði

Málsnúmer 2022120502Vakta málsnúmer

Kynnt voru eftirfarandi mál frá fræðslu- og lýðheilsuráði:

- Kynning frá Oddeyrarskóla. Foreldrafærnisnámskeið fyrir foreldra í fyrsta bekk.

- Hagaleikskóli - undirbúningur.

- Starfsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðis 2025-2027.

8.Ungmennaráð - önnur mál

Málsnúmer 2022120502Vakta málsnúmer

Ungmennaráð ræddi bréf tveggja nemenda í Menntaskólanum á Akureyri til skólastjórnenda skólans þar sem lýst er yfir áhyggjum um innihald námsganga sem kennd eru við skólann. Ungmennaráð ætlar að gefa sína umsögn og skila til nemandanna.

Fundi slitið - kl. 18:00.