Umhverfis- og mannvirkjaráð

182. fundur 01. apríl 2025 kl. 09:40 - 11:22 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir formaður
  • Bjarney Sigurðardóttir varaformaður
  • Þórhallur Harðarson
  • Ingimar Eydal
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Halla Birgisdóttir Ottesen áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
  • Íris Ósk Sverrisdóttir áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
  • Brynjar Hólm Grétarsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.European City Facility - styrkur til þróunar á fjárfestingum í orkuskiptum

Málsnúmer 2024051764Vakta málsnúmer

Karen M. Kristjánsdóttir, Head of Energy & Sustainability hjá Eim, mætti á fundinn og kynnti verkefni í tengslum við styrk sem Akureyrarbær hefur hlotið úr European City Facility sjóðnum.

Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar, Katla Eiríksdóttir verkefnastjóri úrgangs- og loftslagsmála og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftslagsmála sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.

2.LOFTUM - loftslags- og umhverfisfræðsla

Málsnúmer 2025031425Vakta málsnúmer

Ingunn Helga Bjarnadóttir hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og Sigurborg Ósk Haraldsdóttir hjá SSNE kynntu loftslags- og umhverfisfræðsluverkefnið LOFTUM.

Katla Eiríksdóttir verkefnastjóri úrgangs- og loftslagsmála og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftslagsmála sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.

3.Hlíðarfjall - rekstur skíðaleigu

Málsnúmer 2021102299Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi vegna framlengingar á samningi um rekstur skíðaleigu í Hlíðarfjalli. Samingurinn gildir til 31. maí 2025 og er með framlengingarákvæði um eitt ár.

Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli og Jónas Stefánsson svæðisstjóri í Hlíðarfjalli sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að nýta framlengingarákvæði samningsins um rekstur skíðaleigu í Hlíðarfjalli og felur forstöðumanni Hlíðarfjalls að ganga frá framlengingu á samningi.

4.Hlíðarfjall - rekstur skíða- og brettaskóla 2022-2026

Málsnúmer 2022100748Vakta málsnúmer

Tekin fyrir framlenging á samningi um rekstur skíða- og brettaskóla í Hlíðarfjalli. Samningurinn rennur út 1. maí 2025.

Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli og Jónas Stefánsson svæðisstjóri í Hlíðarfjalli sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að nýta framlengingarákvæði samningsins og felur forstöðumanni Hlíðarfjalls að ganga frá framlengingu samningsins til tveggja ára.

5.Móahverfi - gatnagerð og lagnir - áfangi 2

Málsnúmer 2024120983Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 27. mars 2025 vegna opnunar tilboða í kaup á möl fyrir áfanga 2 vegna framkvæmda við Móahverfi. Þrjú tilboð bárust.

Tómas Björn Hauksson verkefnastjóri nýframkvæmda og viðhalds gatna sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningi við Skútaberg ehf.

6.Malbikun 2025 - viðhald og nýframkvæmdir

Málsnúmer 2025020492Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 27. mars 2025 vegna opnunar tilboða í malbikun sumarið 2025. Tvö tilboð bárust í hvorn flokk.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda á grundvelli fyrirliggjandi tilboða og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningi við Malbikun Akureyrar ehf.

7.Utanhússmálun og múrviðgerðir 2025

Málsnúmer 2025031427Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 28. mars 2025 vegna opnunar tilboða í utanhússmálun og múrviðgerðir á Brekkuskóla, Giljaskóla og Kiðagili sumarið 2025. Tilboð bárust frá fjórum aðilum í ofantalin verk.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda á grundvelli fyrirliggjandi tilboða og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningum við Dragan Pavlica vegna Brekkuskóla og Giljaskóla og við Málningarfélagið ehf. vegna Kiðagils.

8.Þórssvæðið - knattspyrnuvöllur - lagnir

Málsnúmer 2024030763Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 27. mars 2025 vegna opnunar tilboða í lagnir og raflagnir í knattspyrnuvöll á Þórssvæðinu. Tvo tilboð bárust í lagnir og fjögur í raflagnir.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs Lagnastýringar ehf. í lagnir og lægstbjóðanda Rafeyri ehf. í raflagnir og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningum.

9.Þórssvæðið - knattspyrnuvöllur - girðing

Málsnúmer 2024030763Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 27. mars 2025 vegna opnunar tilboða í girðingu við knattspyrnuvöll á Þórssvæðinu. Fjögur tilboð bárust.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda VF verktaka ehf. á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningi.

Fundi slitið - kl. 11:22.