Umhverfis- og mannvirkjaráð

169. fundur 17. september 2024 kl. 08:15 - 11:03 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir formaður
  • Bjarney Sigurðardóttir varaformaður
  • Þórhallur Harðarson
  • Ingimar Eydal
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
  • Heimir Sigurpáll Árnason áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Hlíðarfjall - vélaskemma

Málsnúmer 2022110166Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla vegna framkvæmda við vélageymslu í Hlíðarfjalli.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

2.Klettaborg 43 - íbúðakjarni

Málsnúmer 2017090011Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á leka sem var í Klettaborg 43.

3.Virkjun Fallorku - framkvæmdir innan samnings við Akureyrarbæ

Málsnúmer 2024090664Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur milli Akureyrarbæjar og Fallorku frá árinu 2013 varðandi framkvæmd við gerð virkjunar á Glerárdal og varðandi gerð og viðhald stíga á svæðinu samhliða því.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir samtali við Fallorku um samninginn.

4.Lóð undir geymslusvæði

Málsnúmer 2024060862Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fyrri beiðni umhverfis- og mannvirkjaráðs um að sækja um lóð.
Umhverfis- og mannvirkjaráð telur að ekki sé þörf á því að fá umræddri lóð úthlutað þar sem verkefnið er enn á frumstigi og samþykkir að óska eftir því við skipulagsráð að lóðinni verði ekki úthlutað til annarra þar til kostnaðarmat og frekari ákvarðanir liggja fyrir.

Hilda Jana Gísladóttir S-lista og Ingimar Eydal B-lista sitja hjá.

5.Fjárhagsáætlun UMSA - 2025

Málsnúmer 2024050867Vakta málsnúmer

Lagður fram fjárhagsrammi vegna fjárhagsáætlunargerðar vegna ársins 2025.

6.Fjárhagsáætlun UMSA - 2025

Málsnúmer 2024050867Vakta málsnúmer

Lagðar framr gjaldskrár fyrir árið 2025 vegna umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðar gjaldskrár fyrir sitt leyti fyrir árið 2025 og vísar þeim til bæjarráðs.

7.Fjárhagsáætlun UMSA - 2025

Málsnúmer 2024050867Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að rekstraráætlun allra deilda umhverfis- og mannvirkjasviðs og farið sérstaklega yfir fjárhagsáætlun fyrir Slökkvilið Akureyrar, Hlíðarfjall og leiguíbúðir Akureyrarbæjar.

Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar og Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli sátu fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 11:03.