Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

188. fundur 20. maí 2011 kl. 10:45 - 12:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Sigríður María Hammer
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Valþór Brynjarsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Varpholt - framtíðaráform

Málsnúmer 2009110053Vakta málsnúmer

Farið yfir kauptilboð sem barst í Varpholt.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar hafnar tilboðinu.

2.Fjárhagsáætlun 2011 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2010090169Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi skóladeildar dags. 27. apríl 2011 þar sem fram koma óskir um búnaðarkaup fyrir grunnskóla og Tónlistarskólann á árinu 2011.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir erindið.

3.Glerárskóli gluggaútboð A-álma 2011

Málsnúmer 2010030123Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar verksamningur við L&S verktaka ehf, dags. 4. maí 2011, um endurnýjun glugganna.

4.Íþróttahöllin verðkönnun í brunaviðvörunarkerfi 2011-2012

Málsnúmer 2011040027Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar verksamningur við Ljósgjafann ehf, dags. 6. maí 2011, um endurnýjun brunaviðvörunarkerfis í Íþróttahöllinni.

5.Menningarhúsið Hof - búnaðarkaup

Málsnúmer 2010040083Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á kaupum á gluggatjöldum fyrir suðurhluta Hamragils.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að keypt verði gluggatjöld í Hamragil.

6.Þórsstúka - dómskvaðning matsmanna

Málsnúmer 2011040038Vakta málsnúmer

Upplýst var að þann 5. maí sl. voru þeir Snæbjörn Kristjánsson og Júlíus Sólnes dómkvaddir sem matsmenn vegna leka í Þórsstúkunni.
Þeir eiga að ljúka verkinu fyrir 8. júlí nk.

7.Naustaskóli 2. áfangi - uppsteypa og utanhússfrágangur

Málsnúmer 2010080059Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar greinargerð dags. 13. maí 2011 um ákvörðun kærunefndar útboðsmála í máli 10/2011: Hamarsfell og Adakris UAB gegn Akureyrarbæ, þar sem kröfu kærenda um að stöðva samningsgerð Akureyrarbæjar við SS Byggi ehf er hafnað.

8.Naustaskóli 2. áfangi - uppsteypa og utanhússfrágangur

Málsnúmer 2010080059Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar verksamningur við SS Byggi ehf, dags. 17. maí 2011.

9.Akureyrarvöllur - endurbætur 2010-2012

Málsnúmer 2010070100Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 1 fyrir framkvæmdina.

10.Íþróttamiðstöð Giljaskóla skilamat

Málsnúmer 2011030180Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar skilamat fyrir Íþróttamiðstöðina við Giljaskóla.

11.Verkfundargerðir FA 2011

Málsnúmer 2011010023Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerð lögð fram á fundinum:
Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9 jarðvinna: 4. verkfundur dags. 20. apríl 2011.

Þegar hér var komið vék Njáll Trausti Friðbertsson D-lista af fundi.

12.Lystigarður - kaffihús og minjagripasala

Málsnúmer 2010110084Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður dómnefndar vegna þeirra fjögurra tilboða sem bárust í rekstur kaffihúss og minjagripasölu í Lystigarðinum.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar frestar afgreiðslu málsins.

Fundi slitið - kl. 12:00.