Öldungaráð

40. fundur 23. október 2024 kl. 13:00 - 14:30 -
Nefndarmenn
  • Hjálmar Pálsson formaður
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson
  • Hallgrímur Gíslason fulltrúi ebak
  • Úlfhildur Rögnvaldsdóttir fulltrúi ebak
  • Þorgerður Jóna Þorgilsdóttir fulltrúi ebak
  • Eva Björg Guðmundsdóttir fulltrúi hsn
Starfsmenn
  • Birna Guðrún Baldursdóttir forstöðumaður tómstundamála ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Birna Guðrún Baldursdóttir forstöðumaður tómstundamála
Dagskrá

1.Lýðheilsustefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2022010391Vakta málsnúmer

Birna Guðrún Baldursdóttir forstöðumaður lagði fram og kynnti erindi frá Idu Eyland forstöðumanni skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs varðandi Lýðheilsustefnu Akureyrarbæjar, hvað öldrungaráð telji vera lýðheilsu og hvað Akureyrarbær geti gert til að styðja við lýðheilsu aldraðra.
Öldungaráð fór yfir og ræddi erindið og samþykkir að senda niðurstöðurnar (umsögn nefndarinnar) til fræðslu- og lýðheilsusviðs.

2.Öldungaráð - málþing

Málsnúmer 2022100342Vakta málsnúmer

Hallgrímur Gíslason fulltrúi EBAK sagði frá málþingi um starf öldungaráða sveitarfélaganna sem var haldið fimmtudaginn 17. október 2024. Hann flutti erindi sem hann var með á þinginu.

Fundi slitið - kl. 14:30.