Bæjarráð

3772. fundur 16. júní 2022 kl. 08:15 - 09:51 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Hlynur Jóhannsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson áheyrnarfulltrúi
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Elín Dögg Guðjónsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá
Bæjarráð sem kjörið var á fundi bæjarstjórnar 7. júní sl. er skipað eftirtöldum:

Aðalmenn:
Halla Björk Reynisdóttir, formaður til 1. janúar 2023 og eftir það Gunnar Líndal Sigurðsson
Heimir Örn Árnason, varaformaður
Hlynur Jóhannsson
Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Hilda Jana Gísladóttir
Brynjólfur Ingvarsson, áheyrnarfulltrúi
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Varamenn:
Gunnar Líndal Sigurðsson til 1. janúar 2023, eftir það Hulda Elma Eysteinsdóttir.
Lára Halldóra Eiríksdóttir
Inga Dís Sigurðardóttir
Gunnar Már Gunnarsson
Sindri Kristjánsson
Málfríður Stefanía Þórðardóttir, varaáheyrnarfulltrúi
Ásrún Ýr Gestsdóttir, varaáheyrnarfulltrúi

Formaður bauð nýtt bæjarráð velkomið til starfa.

Lára Halldóra Eiríksdóttir D-lista mætti í forföllum Heimis Arnar Árnasonar.

1.Bæjarsjóður Akureyrarbæjar - yfirlit um rekstur 2022

Málsnúmer 2022042594Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fjögurra mánaða rekstraryfirlit Akureyrarbæjar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2023-2026 - tímaáætlun

Málsnúmer 2022042596Vakta málsnúmer

Lögð var fram ný tímaáætlun vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

3.Ráðningarsamningur bæjarstjóra 2022-2026

Málsnúmer 2022060386Vakta málsnúmer

Ráðningarsamningur við Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra lagður fram til staðfestingar í samræmi við 2. mgr. 49. gr. Samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð staðfestir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar í

bæjarstjórn.

4.Félag leikskólakennara - kjarasamningur 2022-2023

Málsnúmer 2022050266Vakta málsnúmer

Kynntur nýgerður kjarasamningur Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

5.Tilnefning þróunarleiðtoga bæjarráðs

Málsnúmer 2022060687Vakta málsnúmer

Tilnefning þróunarleiðtoga bæjarráðs skv. mannréttindastefnu sveitarfélagsins.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð tilnefnir Hildu Jönu Gísladóttur þróunarleiðtoga bæjarráðs.


Hilda Jana Gísladóttir S-lista, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista og Sunna Hlín Jóhannesdóttir B-lista óska bókað:


Hlutverk þróunarleiðtoga er viðamikið og felur í sér mikla ábyrgð við að fylgja sérstaklega eftir lögbundnum verkefnum sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum og verkefnum mannréttindastefnu sveitarfélagsins. Þróunarleiðtogar eiga að vera málsvarar kynjasamþættingar og mannréttinda og tileinka sér innsýn og þekkingu á mannréttindum. Þeirra verkefni er m.a. að vinna að samþættingu mannréttindasjónarmiða í fjárhagsáætlun og stefnumótun, fylgja eftir funda- og fræðsluáætlun hvers árs og styðja starfsfólk í mannréttindastarfi. Þá ættu þróunarleiðtogar í samstarfi við formann bæjarráðs að leiða endurskoðun mannréttindastefnunnar. Vegna umfangs teljum við eðlilegt að greitt sé fyrir vinnu þróunarleiðtoga og er tillaga okkar að um sé að ræða 1% á mánuði og yrði bætt við reglur um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ.

6.Iðnaðarsafnið á Akureyri - skipun fulltrúa í stjórn 2022

Málsnúmer 2022060766Vakta málsnúmer

Skipun fulltrúa í stjórn Iðnaðarsafnsins á Akureyri.
Bæjarráð samþykkir með fimm samhljóða atkvæðum að skipa Almar Alfreðsson verkefnastjóra menningarmála og Einar Gunnlaugsson sem fulltrúa Akureyrarbæjar í stjórn Iðnaðarsafnsins.

7.Ákall kennara um menntun til sjálfbærni

Málsnúmer 2022051585Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi móttekið 27. maí 2022 frá Margréti Hugadóttur f.h. hóps kennara um allt land þar sem sveitarstjórnir eru hvattar til að setja menntun til sjálfbærni í forgang.

8.Stjórn Félags atvinnurekenda - áskorun til sveitarfélaga vegna fasteignaskatts

Málsnúmer 2022060071Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 31. maí 2022 frá Ólafi Stephensen, f.h. Félags atvinnurekenda, þar sem skorað er á sveitarfélög landsins að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði við gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár til að bregðast við miklum hækkunum fasteignamats fyrir árið 2023.
Vegna óvenju mikilla hækkana fasteignamats mun bæjarráð skoða alvarlega hvort lækka eigi álagningaprósentu bæði á atvinnu- og íbúðarhúsnæði við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs.

9.Brekkuskóli - hugmyndir frá nemendum

Málsnúmer 2022060072Vakta málsnúmer

Erindi, ódagsett, frá nemendum í 7. og 8. bekk í Brekkuskóla þar sem þau koma á framfæri hugmyndum sínum um hvað ný bæjarstjórn geti bætt fyrir krakka og unglinga á Akureyri á nýju kjörtímabili.
Bæjarráð þakkar nemendum Brekkuskóla fyrir hugmyndirnar og vísar þeim til fræðslu- og lýðheilsuráðs til kynningar.

10.Stjórn Norðurorku hf. - fundargerðir 2022

Málsnúmer 2022031302Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 275. fundar stjórnar Norðurorku hf. dagsett 7. júní 2022.

11.Áform um breytingu á kosningalögum í Samráðsgátt

Málsnúmer 2022060264Vakta málsnúmer

Lögð fram áform um breytingu á kosningalögum sem hafa verið birt í Samráðsgátt. Dómsmálaráðuneytið/Landskjörstjórn óskar eftir ábendingum og athugasemdum um áformin, eigi síðar en 1. júlí 2022.

Fundi slitið - kl. 09:51.