Málsnúmer 2017010284Vakta málsnúmer
Liður 6 í fundargerð frístundaráðs dagsettri 25. mars 2020:
Sviðsstjóri kynnti tillögu að fyrirhuguðum breytingum á skipuriti samfélagssviðs.
Bryndís Elfa Valdemarsdóttir starfandi deildarstjóri forvarna- og frístundadeildar sat fundinn undir þessum lið.
Meirihluti frístundaráðs samþykkir tillöguna.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista og Viðar Valdimarsson M-lista greiða atkvæði á móti.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista og Viðar Valdimarsson M-lista leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar minnihlutans telja óábyrgt að samþykkja tillögu um breytingu á skipulagi sem inniheldur ekki kostnaðaráætlun og hafna af þessari ástæðu tillögunni.
Liður 5 í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dagsettri 26. mars 2020:
Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri gerði grein fyrir tillögu að fyrirhuguðum breytingum á skipuriti samfélagssviðs.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjaráðs.
Liður 2 í fundargerð kjarasamninganefndar dagsettri 6. apríl 2020:
Umfjöllun um tillögur að breytingum á skipuriti samfélagssviðs.
Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sátu fund kjarasamninganefndar undir þessum lið.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir störf forstöðumanns íþróttamála, forstöðumanns sundlauga, forstöðumanns forvarna og forstöðumanns Akureyrarstofu samkvæmt reglum Akureyrarbæjar um stjórnendaálag forstöðumanna.
Kjarasamninganefnd leggur jafnframt til við bæjarráð að samþykkt verði að laun þeirra starfsmanna sem gegna störfum sem taka breytingum vegna breytinga á skipuriti samfélagssviðs lækki ekki á meðan unnið er að mati á störfum í starfsmati og gildi sú ákvörðun til 31. desember 2021. Samkvæmt verklagsreglum starfsmats ber að meta ný störf í starfsmati þegar sex mánaða reynsla er komin á störfin. Starfsmaður á rétt á því að óska eftir endurmati þegar niðurstaða liggur fyrir um mat á starfi. Kjarasamninganefnd leggur áherslu á að unnið verði að mati á ofangreindum störfum í samræmi við gildandi verklagsreglur um mat á nýjum störfum.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.