Málsnúmer 2013060238Vakta málsnúmer
Erindi dagsett 24. júní 2013 þar sem Þuríður Þórðardóttir f.h. Benediktu ehf., kt. 640912-0220, sækir um breytta notkun á 2. 3. og 4. hæð í Hafnarstræti 108 úr skrifstofuhúsnæði í gistiskála. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gunnlaug Björn Jónsson. Innkomnar umsagnir Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra 18. júní 2013 og eldvarnareftirlits 25. júní 2013.
Jafnframt er óskað eftir að gefin verði jákvæð umsögn til bráðabirgða til sýslumanns um rekstur gistiskálans. Meðfylgjandi er tímasett framkvæmdaáætlun nauðsynlegra lagfæringa á húsnæðinu.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Lóðaskrárritara er falið að gera yfirlýsingu um breytta stærð lóðar.