Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

977. fundur 25. júlí 2024 kl. 14:00 - 14:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Katrín Rós Ívarsdóttir Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Dagskrá

1.Norðurgata 3-7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024070876Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. júlí 2024 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Trésmiðju Ásgríms ehf sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir tveimur fjölbýlishúsum á lóð nr. 3-7 við Norðurgötu. Innkomin gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Lautarmói 1-5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024041376Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. apríl 2024 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd HeiðGuðByggir ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 1-5 við Lautarmóa. Innkomin uppfærð gögn, dags. 25.júlí eftir Tryggva Tryggvason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Kjarnagata 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2024070903Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. júlí 2024, þar sem Gunnar Örn Sigurðsson f.h. Haga ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir sjálfsafgreiðslustöð eldsneytis á lóð nr. 2 við Kjarnagötu. Innkomin gögn eftir Gunnar Örn Sigurðsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Fundi slitið - kl. 14:30.