Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

970. fundur 06. júní 2024 kl. 13:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Geislagata 9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024030882Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. mars 2024 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar á áður samþykktum flóttastiga á húsi nr. 9 við Geislagötu. Innkomin uppfærð gögn eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Þingvallastræti 31 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024010742Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. janúar 2024 þar sem Ívar Hauksson fyrir hönd G.M.Í. ehf, sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir nýbyggingu á lóð nr. 31 við Þingvallastræti. Óskað er eftir að byggja vinnustofu. Innkomin gögn eftir Ívar Hauksson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Hjalteyrargata 20 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024051106Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. maí 2024 þar sem Kári Magnússon f.h. Slippsins Akureyri ehf. sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 20 við Hjalteyrargötu. Innkomin gögn eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Norðurtangi 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024051806Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. maí 2024 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. Rafeyrar ehf., sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir viðbyggingu við hús nr. 5 við Norðurtanga. Innkomin gögn eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Bjarkarlundur 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024051455Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. maí 2024 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir f.h. Áskels Viðars Bjarnasonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 2 við Bjarkarlund. Innkomin gögn eftir Önnu Margréti Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

6.Þingvallastræti 36 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024060552Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. júní 2024 þar sem Björn Sveinsson f.h. Sigurðar Halldórssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir nýju einbýlishúsi í stað þess sem stendur á lóð nr. 36 við Þingvallastræti. Innkomin gögn eftir Björn Sveinsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

7.Naust 2 - umsókn um byggingarleyfi - niðurrif

Málsnúmer 2024040830Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. apríl 2024 þar sem Akureyrarbær sækir um niðurrif á húsum að Naustum 2.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki bygginganna verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. mannvirkjalaga.

8.Strandgata 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024050541Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. maí 2024 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson f.h. Strandgötu 1 ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 1 við Strandgötu. Innkomin gögn eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið.