Holtahverfi - ÍB18 - Skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030

Svæðið sem breytingin nær til
Svæðið sem breytingin nær til

Akureyrarbær hefur hafið vinnu við breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030. Breytingin felst í því að einnig verður heimilt að byggja lífsgæðakjarna innan vestari reit íbúðarbyggðar ÍB18. Lífsgæðakjarnar eru heiti yfir húsnæði sem er einkum hugsað fyrir eldra fólk þar sem áhersla er á fjölbreytt búsetuform, m.a. hjúkrunarheimili. Áhersla er lögð á fjölbreytta þjónustu í bland við íbúðarhúsnæði fyrir aðra aldurshópa. Markmiðið er að tryggja áhugavert og aðlaðandi umhverfi, samveru og öryggi um leið og komið er til móts við ólíkar þarfir.

Nú liggur fyrir skipulagslýsing þar sem fram kemur hvaða áherslur bæjarstjórn hefur við skipulagsvinnuna, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað.

Lýsinguna má nálgast hér.

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér skipulagslýsinguna og senda inn ábendingar í gegnum skipulagsgátt, með tölvupósti á skipulag@akureyri.is a bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9.

Frestur til að senda inn ábendingar er til 7. ágúst 2024.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan