Umferðarstýring á Strandgötu austan Hjalteyrargötu
Skipulagsráð samþykkti þann 13. mars 2019, að beiðni Hafnasamlags Norðurlands, að ekki verði leyfður akstur austur Strandgötu, frá Hjalteyrargötu að Laufásgötu.
Kynning á breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, Krossaneshagi – B áfangi
Skipulagsráð Akureyrarkaupstaðar kynnir, í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030.