Velferðarráð

1393. fundur 23. október 2024 kl. 14:00 - 15:55 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir varaformaður
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
  • Hólmgeir Karlsson
  • Guðbjörg Anna Björnsdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Halla Birgisdóttir Ottesen áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Ingólfur Örn Helgason fundarritari
Fundargerð ritaði: Ingólfur Ö Helgason fundarritari
Dagskrá
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir L-lista sat fundinn í forföllum Huldu Elmu Eysteinsdóttur.

1.Velferðarsvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráði 2024

Málsnúmer 2024040339Vakta málsnúmer

Fundurinn hófst á heimsókn í Sólberg - fjölskylduheimili.

Ingibjörg Kristín Gunnarsdóttir verkefnastjóri og Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður tóku á móti ráðinu og sögðu frá starfseminni.
Velfrarðarráð þakkar fyrir góða og gagnlega kynningu á starfsemi Sólbergs.

2.Fjárhagsaðstoð 2024

Málsnúmer 2024031217Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð á fyrstu níu mánuðum ársins.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður og Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sátu fundinn undir þessum lið.

3.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2024

Málsnúmer 2024031216Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur málaflokka velferðarráðs fyrstu níu mánuði ársins.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.

4.Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur - breytingar á starfsemi

Málsnúmer 2024100716Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 23. október 2024 þar sem lagðar eru til ákveðnar breytingar á starfsemi Plastiðjunnar Bjargs-Iðjulundar.

Svanborg Bobba Guðgeirsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð vísar umræðu um málið til samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.

Fundi slitið - kl. 15:55.