Velferðarráð

1389. fundur 26. júní 2024 kl. 14:00 - 15:19 Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Hólmgeir Karlsson
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Tanja Hlín Þorgeirsdóttir
  • Halla Birgisdóttir Ottesen áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Ingólfur Örn Helgason fundarritari
Fundargerð ritaði: Ingólfur Helgason fundarritari
Dagskrá
Halla Birgisdóttir Ottesen F-lista sat fundinn í forföllum Tinnu Guðmundsdóttur.
Tanja Hlín Þorgeirsdóttir B-lista sat fundinn í forföllum Guðbjargar Önnu Björnsdóttur.
Elsa María Guðmundsdóttir S-lista boðaði ekki forföll né varamaður hennar.

1.Skógarlundur - þjónusta til framtíðar

Málsnúmer 2024061430Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 26. júní 2024 um þjónustu Skógarlundar og áskoranir í þjónustunni.

Ragnheiður Júlíusdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð þakkar góða yfirferð á stöðunni í Skógarlundi og felur sviðsstjóra og forstöðumanni að vinna að frekari útfærslu tillagna sem verða teknar til umræðu við gerð fjárhagsáætlunar.

2.Heimsendur matur - könnun 2024

Málsnúmer 2024030735Vakta málsnúmer

Farið yfir niðurstöður könnunar á ánægju notenda með heimsendan mat sem velferðarsvið útvegar þeim sem eru í þörf fyrir aðstoð.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður og Arnþrúður Eik Helgadóttir iðjuþjálfi sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð lýsir ánægju með framkvæmd og jákvæða niðurstöðu könnunarinnar.

3.Viðauki vegna fjárhagsaðstoðar

Málsnúmer 2024061181Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um viðauka vegna fjárhagsaðstoðar.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður og Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan viðauka og vísar til bæjarráðs.

4.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2024

Málsnúmer 2024031216Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur málaflokka velferðarráðs fyrstu fimm mánuði ársins.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.

5.Viðauki vegna þjónustu við börn

Málsnúmer 2024060616Vakta málsnúmer

Lögð fram til samþykktar beiðni um viðauka vegna þjónustu við börn.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan viðauka og vísar til bæjarráðs.

6.Viðauki vegna NPA 2024

Málsnúmer 2024060655AVakta málsnúmer

Lögð fram til samþykktar beiðni um viðauka vegna NPA og notendasamninga.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan viðauka og vísar til bæjarráðs.

7.Samningur um þjónustu við fatlað fólk í Eyjafirði

Málsnúmer 2023090320Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir að nýju samningur um sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlað fólk.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á samningnum og vísar til bæjarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 15:19.