Velferðarráð

1308. fundur 02. október 2019 kl. 14:00 - 17:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri öa
  • Laufey Þórðardóttir sviðsstjóri búsetusviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kolbeinn Aðalsteinsson
Dagskrá

1.Öldungaráð - kynning á starfsemi, umræður

Málsnúmer 2019090532Vakta málsnúmer

Fulltrúar öldungaráðs kynntu fyrir velferðarráði hlutverk og helstu verkefni öldungaráðs.

Helgi Snæbjarnarson formaður, Elías Gunnar Þorbjörnsson og Valgerður Jónsdóttir fulltrúar öldungaráðs og Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð þakkar fyrir kynningu á hlutverki og verkefnum öldungaráðs.

2.Fjárhagserindi 2019 - áfrýjanir

Málsnúmer 2019050634Vakta málsnúmer

Gyða Björk Ólafsdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldusviði kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.

3.Fjárhagserindi 2019 - áfrýjanir

Málsnúmer 2019050634Vakta málsnúmer

Selma Heimisdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldusviði kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.

4.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2019

Málsnúmer 2019030355Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit fyrstu 8 mánuði ársins frá búsetusviði, fjölskyldusviði og Öldrunarheimilum Akureyrar.

5.Velferðarstefna 2018-2023

Málsnúmer 2018081103Vakta málsnúmer

Lögð fram aðgerðaáætlun sviða velferðarráðs en uppsetning var unnin af Fremri almannatengslum. Áætlunin er unnin og uppsett miðað við að skjalið sé aðgengilegt á vef bæjarins.

Næsti áfangi er að setja aðgerðir annarra sviða inn í þetta samræmda format.
Velferðarráð samþykkir framsetningu aðgerðaáætlunar sem nú fer til birtingar á heimasíðu Akureyrarbæjar. Jafnframt felur velferðarráð sviðsstjórum að setja af stað vinnu við að bæta aðgerðum annarra sviða inn í heildarskjalið.

6.Skammtímavistun - reglur 2019

Málsnúmer 2019080549Vakta málsnúmer

Laufey Þórðardóttir sviðsstjóri búsetusviðs lagði fram til kynningar nýjar reglur skammtímavistunar Akureyrarbæjar.

7.Málefni í vinnslu og gögn frá SFV

Málsnúmer 2015040217Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 23. september 2019 frá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu varðandi frumvarp til fjárlaga og helstu þætti þess er varða rekstur hjúkrunarheimila.

8.Endurbætur í aðaleldhúsi ÖA

Málsnúmer 2014030072Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri ÖA, Halldór S. Guðmundsson, greindi frá framvindu við hagkvæmnisathugun samanber fund velferðarráðs nr. 1304.

Áætluð verklok og skil á skýrslu um athugunina ásamt kynningu verður mánudaginn 14. október 2019 fyrir hádegi og er gert ráð fyrir að kynninguna sitji fulltrúar úr velferðarráði og fleiri aðilar.

9.Öldrunarþjónusta - biðlistar

Málsnúmer 2016020149Vakta málsnúmer

Málinu frestað til næsta fundar.

10.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2019

Málsnúmer 2019090556Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir stöðu biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði í lok september 2019.

Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.

11.Sérstakur húsnæðisstuðningur 2019

Málsnúmer 2019090557Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir stöðu og útgjöld sérstaks húsnæðisstuðnings á árinu 2019.

Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 17:00.