Umhverfis- og mannvirkjaráð

166. fundur 13. ágúst 2024 kl. 08:15 - 10:24 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir formaður
  • Einar Þór Gunnlaugsson
  • Þórhallur Harðarson
  • Ingimar Eydal
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Einar Þór Gunnlaugsson M-lista mætti í forföllum Bjarneyar Sigurðardóttur.

1.Leirustígur - hönnun og framkvæmdir

Málsnúmer 2022021084Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 9. ágúst 2024 varðandi opnun tilboða í frágang á Leirustíg. Eitt tilboð barst frá Finni ehf.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis-og mannvirkjaráð samþykkir tilboð frá Finni ehf. upp á kr. 27.732.200.

2.Brú yfir Glerá - Skarðshlíð-Glerártorg

Málsnúmer 2022120693Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu útboðs á byggingu brúar yfir Glerá. Engin tilboð bárust, næstu skref rædd.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar og Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.

3.Grímsey - fasteignir

Málsnúmer 2024010684Vakta málsnúmer

Lagt fram tilboð í fasteign og farið yfir stöðu á mögulegri sölu annarra fasteigna í Grímsey.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar tilboði í Hafnargötu 15 í Grímsey til bæjarráðs.

4.Bílastæði við Glerárskóla, Klappir og Árholt

Málsnúmer 2023120628Vakta málsnúmer

Farið yfir betrumbætur á umferðaröryggi við Glerárskóla. Meðal annars með endurskipulagningu núverandi bílastæða þannig að nýting þeirra verði í samræmi við upphaflega hönnun. Þar að auki verði settar lokanir á göngustíga til að koma í veg fyrir akstur um þá.

Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

5.Rekstur UMSA 2024

Málsnúmer 2024080516Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað til upplýsingar vegna reksturs UMSA fyrstu 6 mánuði ársins 2024.

Fundi slitið - kl. 10:24.