Umhverfis- og mannvirkjaráð

54. fundur 12. apríl 2019 kl. 08:15 - 11:15 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Göngu- og hjólastígur milli Lónsbakkahverfis og Akureyrar

Málsnúmer 2018110144Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn varðandi göngu- og hjólastíg milli Lónsbakkahverfis og Akureyrar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu málsins.

2.Verkfundargerðir 2019

Málsnúmer 2019010182Vakta málsnúmer

Eftirfarandi fundargerð lögð fram á fundinum:

Klettaborg 43: 1. verkfundur dagsettur 19. mars 2019.

3.Glerárskóli - bygging leikskóla, lóðar, tengibygginga og samkomusals

Málsnúmer 2018050021Vakta málsnúmer

Teikningar lagðar fram til kynningar.

Sigurður Gunnarsson eftirlitsmaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

4.Glerárskóli - endurbætur B álma

Málsnúmer 2019020224Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. apríl 2019 varðandi stöðu verksins.

Sigurður Gunnarsson eftirlitsmaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

5.Búnaðarkaup vegna frístundaráðs

Málsnúmer 2019020414Vakta málsnúmer

Lögð fyrir ráðið beiðni frístundaráðs til búnaðarkaupa fyrir árið 2019.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að veita frístundaráði fjárveitingu að upphæð kr. 7 milljónir til kaupa á skorklukku í íþróttahúsið við Dalsbraut og kr. 10 milljónir til kaupa á Pump track hjólabraut við Oddeyrarskóla. Fjárveitingin skal rúmast innan framkvæmdaáætlunar 2019.

6.Bifreiðarkaup umhverfis- og mannvirkjasvið 2019

Málsnúmer 2019040172Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 9. apríl 2019 varðandi kaup á bílum á viðhalds- og nýframkvæmdadeild.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaup á tveimur nýorkubifreiðum og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að útfæra kaupin innan fjárhagsramma.

7.Grímsey - hundahald, undanþága yfir páska

Málsnúmer 2019040198Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett apríl 2019 varðandi undanþágu til hundahalds í Grímsey yfir páskana.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að veita undanþáguna.

8.Framkvæmdaáætlun um malbikun gatna, gangstétta og stíga

Málsnúmer 2018080973Vakta málsnúmer

Lögð fram minnisblöð dagsett 9. og 11. apríl 2019 varðandi malbikun gatna, gangstétta og stíga.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framsetta framkvæmdaáætlun.

9.Umhverfis- og samgöngustefna Akureyrarbæjar - verkefni UMSA

Málsnúmer 2018080975Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngustefna Akureyrarbæjar var kynnt með breytingum.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.

10.Umhverfisviðburðir 2019

Málsnúmer 2019040165Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 8. apríl 2019 varðandi fyrirhugaða umhverfisviðburði á árinu 2019.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir þátttöku í fyrirhuguðum umhverfisviðburðum.

11.Hamrar - framkvæmdaþörf á tjaldsvæðinu

Málsnúmer 2018100339Vakta málsnúmer

Tryggvi Marinósson framkvæmdastjóri Hamra kom á fundinn og ræddi stöðu tjaldsvæðisins á Hömrum.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.

12.Brýr yfir Eyjafjarðará

Málsnúmer 2017120110Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að brú ásamt minniblaði dagsettu 10. apríl 2019 varðandi grunnkostnaðarmat.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að vinna málið áfram.

13.Klettaborg 43 - íbúðakjarni

Málsnúmer 2017090011Vakta málsnúmer

Kynnt var breytt staða á útboði framkvæmdarinnar.

Eftirfarandi tilboð bárust:

JS trésmíði kr. 233.003.896 eða 100,3% af kostnaðaráætlun.

BB byggingar kr. 235.143.382 eða 101,2% af kostnaðaráætlun.

SS Byggir kr. 236.945.523 eða 102,0% af kostnaðaráætlun.

Tréverk kr. 242.776.710 eða 104,5% af kostnaðaráætlun.

HHS verktakar kr. 273.439.131 eða 117,7% af kostnaðaráætlun.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði BB bygginga ehf. að skilyrðum útboðsgagna uppfylltum eftir að JS trésmíði dró tilboð sitt til baka.

14.Hlíðarfjall - kaup á snjótroðara

Málsnúmer 2019010175Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. apríl 2019 með niðurstöðum útboðs.

Eftirfarandi verðtilboð bárust:

Rafstilling ehf. kr. 59.300.241 eða 99% af kostnaðaráætlun.

Artic trucks á Íslandi kr. 63.470.000 eða 106% af kostnaðaráætlun.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda að skilyrðum útboðsgagna uppfylltum.

15.Hrísey - gatnagerð

Málsnúmer 2019010173Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 4. apríl 2019 með niðurstöðum útboðs.

Eftirfarandi tilboð barst:

Finnur ehf. kr. 71.895.825 eða 93,2% af kostnaðaráætlun.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboðinu að skilyrðum útboðsgagna uppfylltum.

16.Týsnes - gatnagerð og lagnir

Málsnúmer 2019020223Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 9. apríl 2019 með niðurstöðum útboðs.

Eftirfarandi tilboð bárust:

Skútaberg ehf. kr. 59.154.000 eða 75% af kostnaðaráætlun.

G. Hjálmarsson ehf. kr. 67.489.700 eða 85% af kostnaðaráætlun.

Túnþökusalan Nesbræður ehf. kr. 113.674.500 eða 144% af kostnaðaráætlun.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda að skilyrðum útboðsgagna uppfylltum.

17.Lundarsel - lausar kennslustofur

Málsnúmer 2019030134Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 8. apríl 2019 með niðurstöðum útboðs.

Eftirfarandi tilboð bárust:

Lækjarsel kr. 88.000.000 eða 93% af kostnaðaráætlun.

B. Hreiðarsson kr. 92.272.000 eða 97% af kostnaðaráætlun.

HHS Verktakar kr. 109.980.000 eða 116% af kostnaðaráætlun.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir með þrem atkvæðum meirihluta að taka tilboði lægstbjóðanda að skilyrðum útboðsgagna uppfylltum og með fyrirvara um samþykkt fræðsluráðs á framkvæmdinni.

Gunnar Gíslason D-lista og Berglind Bergvinsdóttir M-lista sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

18.Sparkvellir við grunnskóla - endurnýjun á gervigrasi 2019

Málsnúmer 2019030361Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 8. apríl 2019 með niðurstöðum útboðs.

Eftirfarandi verðtilboð bárust:

Metatron kr. 16.370.692 eða 90,9% af kostnaðaráætlun.

Metatron kr. 17.743.346 eða 98,6% af kostnaðaráætlun.

Altís kr. 18.100.000 eða 100,6% af kostnaðaráætlun.

Altís kr. 18.100.000 eða 100,6% af kostnaðaráætlun.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda að skilyrðum útboðsgagna uppfylltum.

19.Stöðuskýrslur rekstrar UMSA 2019

Málsnúmer 2019030350Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla rekstrar umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir janúar og febrúar 2019.

Fundi slitið - kl. 11:15.