Skólanefnd

15. fundur 26. september 2016 kl. 15:00 - 16:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Hanna Dögg Maronsdóttir
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Dagskrá
Preben Jón Pétursson Æ-lista boðaði forföll. Ekki tókst að boða varamann í hans stað.
Vilborg Hreinsdóttir fulltrúi leikskólakennara mætti ekki á fundinn.
Kristín Jóhannesdóttir fulltrúi skólastjórnenda mætti til fundar 15:10.

1.Fjárhagsáætlun fræðslumála 2017

Málsnúmer 2016080015Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun fræðslu- og uppeldismála fyrir árið 2017.

Tillagan gerir ráð fyrir að ramminn fyrir málaflokkinn sé kr. 6.223.215.000.

Í tillögunni er gert ráð fyrir 3% hækkun á vistunar- og skólagjöldum í leik- og grunnskólum og í tónlistarskólanum.

Ekki er gert ráð fyrir hækkun á fæðisgjöldum í leik- og grunnskólum.

Skólanefnd samþykkir framlagðar tillögur og vísar málinu til frekari afgreiðslu í bæjarráði.

Fundi slitið - kl. 16:00.